húsmóðir í hólunum með sína þungu.....

How you do'in

25.11.2008 09:35:37 / ViggZ

smá blogg..

Því ég á nú að vera að læra einsog 100 latínu orð fyrir morgundaginn fannst mér bara bráðnauðsynlegt að smella smá bloggi inn.... En allavega þá er ég bara í skólanum hresss og kát!!! búið að ganga mjög vel nema grasafræðiprófið... er að vona að ég hafi allavega náð... en enn sem komið er þá eru lokaeinkanirnar mínar ekki fyrir neðan 9 svo.... kellan er bara að rúlla þessu upp er nörri skólans held ég bara......

Gegnur vel í nöglum en frekar rólegt að gera núna... en það glæðist vonandi í des!!!!!

Svo tók mín þátt í tískusýningu á konukvöldi blómavals!!! bara gaman. Sýndi 2 kjóla frá Hósiló, geggjaðir kjólarnir sem ég valdi mér!!!.

Allir að kíkja á aðventukvöld í blómaval á fimmtudag!! það verður óvænt ánægja!!!!

knús og kram
og ef þið eigið smá prófundirbúningsorku þá megið þið endilega senda hana yfir til mín!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 22:44:22 / ViggZ

á skólabekk ég sest, sest

Og þú mátt koma með með hehe
Jæja nú er mín bara að fara að setjast á skólabekk.. hvernig verður það eiginlega. Maginn er alveg kominn niður í gólf af stressi. Ég var að losa mig við helv.... dagbókina sem er búin að liggja á mér einsog klettur. Ég er sko nokkrum sinnum næstum búin að taka allt tölvukins í húsinu og grýta því út um gluggana á húsinu :klikk: Það er sko ýmisleg búið að ganga á hér get ég sagt ykkur mörg blöð farin í ruslið og geðheilsa í ruslinu og svona :$ Nei ætli ég haldi ekki sönsum kemur í ljós...

En já sumarfríið mitt leið einsog hendi væri veifað og það voru sko 5 vikur og það var sko búið áður en það byrjað. En við fórum á Kirkjuferju í útilegu bara gaman að hitta alla þar. Ég reyndar stalst í burtu á laugardeginum og fór að vinna í brúðkaupi á flúðum hjá henni mæju pæju!! Bara stuð á liðinu þar, en það var sko bara flott veisla. Þau voru með kúrekaþema. Þau voru bæði í íslenska þjóðbúningnum og strákarnir þeirra líka. Svo var svissað yfir í partýfötin þegar leið á kvöldið.

Við fórum svo austur með Bergþóru og Trausta um versló og vorum með þeim í 2 vikur. En þau gengu í það heilaga 8 ágúst, ég sá um að skreyta og skipa fyrir ( ekki alveg ég að ráðskast með fólk en það tókst). Tjaldið var mjög flott þó ég segi sjálf frá og háborðið var mjög flott. Þau voru að ég held bara sátt við skreytingarnar. Athöfnin var úti og var veislan æði góður matur og var bara kósý stemmari fram eftir nóttu. Við fórum svo í ferðalag eftir brúðkaupið þegar búið var að ganga frá öllu þá lögðum við af stað á Vopnafjörð, kíktum í kaffi hjá frænku Bergþóru og héldum áfram einsog leið lá inn í Ásbyrgi og vá hvað það er fallegt þar. Við vorum 2 nætur í ásbyrgi og skoðuðum mikið og nutum þess að vera út í náttúrunni. Við kíktum á Dettifoss  og annan foss aðeins neðar sem ég man ekkert hvað heitir.... leiðin lá síðan á Akureyri og gistum við eina nótt þar fórum í sund  og auðvitað var farið í rennibrautina!!!! Elínborgu fannst rennibrautin æði litla dýrið hehe. Við keyrðu síðan beint heim eftir akureyri en þau drifu sig á Danska Daga en í staðinn fyrir Danska þá fórum við á Blómstrandi daga í hveró. Takk æðislega fyrir frábærar stundir!!!!!!

Daníel er svo byrjaður í skólanum og er hann búinn að vera í skólanum í heila viku... úff hvað tíminn virðist fljúga frá manni Ég byrja síðan í skólanum á mánudaginn.

Jæja hef þetta ekki lengra að sinni en lofa ekki hvenær bloggað verður næst...

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 21:29:23 / ViggZ

bissí trissí....

Það er búið að vera nóg að gera að venju!!! lífið gengur sinn vanagang og bara frekar ljúft lífið hérna í hólunum. Við erum loksins komin með gras á blettinn og þvílíkur munur!!! Það er að venju nóg að gera í nöglum og allir bara mjög sáttir við mig og mínar neglur.

Ég var svo heppin að fá að taka þátt í að gæsa hana Kollu skvís!! og dagurinn var æðislegur frá a til ö ótrúlega vel skipulagt hjá stelpunum sem skipulögðu daginn. Þetta var sko aksjón frá kl 10 til 3 um nóttina!! bara gaman. Hún Sigga klingenberg kom og spáði í spil og árur og allskonar stöff. fórum líka í hljóðverið hjá Labba í karma og Kolla tók upp 1 stk lag á disk algjör gella!!
 Brúðkaupið hjá þeim var æði, hún Kolla var einsog prinsessa í ævintýri þegar hún gekk inn kirkjugólfið. Og veislan var æði við tjúttuðum til að ganga 4 um nóttina þegar hljómsveitin og nýgiftu hjónin voru farin þá skelltum við bara upp Diskói! ekki leiðinlegt það :haha:

ég er búin að fara í skólann á nýnemadag, og búin að fá að vita hvað ég þarf að vera komin með þegar skólinn byrjar. Og það styttist ótrúlega í skólann... bara 2 og hálfur mánuður.. og þar af 5 vikur í sumarfrí!!!! Það er orðiðr mjög stutt í sumarfríið hjá okkur, krakkarnir eru reyndar byrjaðir og njóta þess að sofa frameftir og kúra sér og leika úti til 10 á kvöldin. Það er svo fínn róluvöllur hér að við treystum þeim alveg til að leika svona lengi, svo eru allir krakkarnir líka að leika úti.

Það er alltaf nóg að gera í vinnunni, ég er mest á útisvæðinu með Kollu og Jóni Grétari. Atli er svo byrjaður að vinna allan daginn og hefur það hresst mannskapinn vel, enda er hann alltaf eitthvað að fíflast og rugla í okkur......

held að það sé komið nóg af bloggerí bloggi í bili....

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 22:43:53 / ViggZ

Alltaf nóg að gera....

Búið að vera að nóg að gera um helgina... Var heima með stelpuna lasna á föstudaginn hún var með leiðindarpest í mallakútnum sínum... Ældi og svona skemmtileg heit um nóttina svo við ákváðum að vera bara heima í rólegheitum. Hún var nú sem betur fer fljót að hrissta þetta af sér skottan!!! Ég sat bara og skrappaði á föstudeginum og hlustaði á konung ljónana 1 og 3 all nokkrum sinnum.... Þórdís sæta kíkti við í smá stund og stimplaði nokkrar magnólíur. Daníel fór í afmæli neðar í götunni og skemmti sér konunglega. Árdís og Baldur kíktu í heimsókn til okkar og var það ekki mikið mál. Svo kom ein í neglur til mín og krakkarnir voru bara mjög stilltir og léku sér vel saman á milli þess sem þau kíktu á tv.
Við kíktum svo í IKEA á laugardeginum og náðum nú að versla smá..... kíktum líka við í nítró og sjónvarpsmiðstöðinni og versluðum heilt sjónvarp fyrir Marlín.... svo í dag brunuðum við í hafnafjörðinn og kíktum á hana Arnbjörgu sætu!!! hún er sko 1 árs skottulín.. ótrúlegt hvað tíminn virðist fljúga áfram... hún sem er bara nýfædd...

En það er annars alltaf nóg að gera hjá mér... næstu helgar þéttskipaðar í allskonar glensi og gaman... 2 brúðkaup í sumar og ætli við förum ekki í nokkrar útilegur... reynum að nýta tjaldvagninn sem mest!!!!

Við bíðum svo spennt eftir Þorvaldssynum til að græja garðinn!!!! og mikið verður það gott þegar það verður komið gras á moldarflagið mitt!!!!!

Ég er svo búin að bjóða í naglabor..... ég er sko algjör illi í þessum netkauparmálum hehe.. algjör kjúlli.... og ég keypti líka naglasteina... við skulum bara vona að þeir skili sér.....

Jæja Over and Out!!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 20:50:11 / ViggZ

Stress mess......

Jæja þá er ég búin að láta pota í mig og skoða á alla kanta og það kom í ljós að það er bara ekkert að mér nema JÚ STRESS........ og ennþá meira stress..... Fór líka til tannlæknis og ég sef orðið með tennurnar svo samanbitnar að mig verkjar í allan kjaftinn þegar ég vakna og er algjörlega búin á því eftir nóttina...

Ef ég bara vissi hvað það er sem er að hrjá mig þá gæti ég bara reynt að losa mig við það en nei nei ég get engan veginn áttað mig á því hvað er núna í gangi.... kannski bara orðin örþreytt..... ég er svo líka byrjuð að fara í slökunarnudd því mígrenið er aftur farið að láta á sér kræla..... Enda þegar Sæunn var að nudda mig fannst henni ekkert skrýtið að ég væri með mígreni svona miðað við hversu mikla vöðvabólgu ég er með...... en það var rosalega gott að komast í nudd en samt mjög vont því ég fékk mígreniskast eftir nuddið....  Kolla benti mér svo á að prufa Höfuðbeina og spjaldshryggsjöfnun og ég er að hugsa um að prufa það allavega og sjá hvort að hægt sé að stresslosa mig..... En ef þið hafið einhverja hugmynd hvað ég get gert þá endilega segið mér frá ég skoða allt!!!!! vill geta hvílst....

Daníel er svo búin að fara í skólaheimsókn og gekk það bara glimrandi vel!!! peyjinn ótrúlega stoltur af því að vera að fara í Sunnulækjaskóla. Þau eru 50 sem byrja í 1 bekk í haust!!! og svo eru 50 krakkar í fyrsta bekk núna svo það verður dáldið stór hópur sem kennararnir þurfa að stjórna þarna í sunnulæk. En það verður bara gaman, mér fannst ég vera orðin hundgömul þegar ég var þarna upp í skóla. Meina frumburðurinn "litla" barnið mitt orðið 6 ára og að byrja í skóla já nei......

Elínborg dafnar sem aldrei fyrr og er byrjuð í ballet!! ég fer með henni í fyrsta sinn í ballet á morgun og ég ætla að taka myndavélina með!!! Hún er sko ótrúlega montin af því að vera byrjuð að æfa svona íþrótt. Og það er búið að vera ótrúlega mikið um ballerínur í sjónvarpinu upp á síðkastið og alltaf heyrist í þeirri stuttu "þetta er sko það sem ég er að æfa" eða "ég kann líka að gera þessa æfingu" haldið að sú litla sé montin. Pabbinn var nú ekki parhrifinn af þessu uppátæki mínu að skrá hana í ballet en svo sá hann bara í fyrsta tímanum hvað hún var ótrúlega stolt af því að fá að fara í svona íþróttatíma.

Ég kíkti í garðyrkjuskólann í gær og tíndi börnunum mínum held ég um 10 sinnum... ég var sko farin að hárreyta mig..... Daníel prufaði að sprengja blöðru inn í gróðurhúsi... og komst að því að það heyrist hátt!!!!! ég hélt að fólk myndi bara detta niður þarna á staðnum..... Og Elínborg gerði líka heiðarlega tilraun en hún mistókst sem betur fer :klikk: Berglind boss varð Íslandsmeistari í blómaskreytingum þetta árið!! ótrúlega dugleg stelpan. Svo styttist óðum í að ég setjist á skólabekk í Garðyrkjuskólanum. Það er skuggalegt hvað tíminn flýgur frá manni..... en þetta verður bara gaman!!!

Ég eyddi svo eiginlega öllum miðvikudeginum hjá Bergþóru, krakkarnir mínir náðu bara vel að leika við stelpurnar hennar eða reyndar mest bara Hugrúnu. Daníel gekk bara á eftir henni með stjörnur í augunum :d Þau vildu nú bara ekkert koma með mér heim... þau fengu nú að vera hjá henni í smá stund á meðan ég skaust til mömmu að vesenast. Þúsund þakkir fyrir daginn Bergþóra!! kíki aftur í kaffi og plokk hehehe

Núna ætla ég svo að smella mér í bíó með Marlín sætu spætu og Tótu sætu!!  ætlum að sjá Over Her Dead Body!! verður svona smá Girlsnight out!!!!

Endilega kvittið fyrir komuna margir sem kíkja við en fólk ekkert duglegt við að kvitta....

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 23:07:43 / ViggZ

Bissí babý

Það er alltaf nóg að gera hjá mér.... Búið að vera fullt að gera í nagalstöffinu.... svo er líka bara nóg að gera í félagslífinu....  skellti mér á Jet black Joe ball með skezzunum nema Þórdís treysti sér ekki og Eddurnar voru ekki mjög spenntar fyrir því að fara á Hvíta húsið með litlu börnunum.... Svo við Harpa og Júlí drifum okkur á dansiball.. Ég hitti svo Bergþóru inn á ballinu og týndi Hörpu og Júlí svo dönsuðum við rassin af okkur. Trausti var svo sætur að nenna að skutlast eftir Bergþóru og ég fékk að fljóta með heim á leið, var komin heim um rétt um 4.... Djammboltinn hehe. Svo var afmæli hjá mömmu á sunnudeginum eftir ballið steini varð 50 og ég var að hjálpa til í eldhúsinu og hélt mig bara þar enda frekar þreytt... Dreif mig samt smá stund í hesthúsið svona til að verða aðeins hressari hehe....

Við skessurnar skelltum okkur svo á Jesú krist með honum krumma.... Júdas/Jenni í brainpolice var sko miklu betri og flottari en Krummi, hann hélt sýningunni alveg uppi. En þetta var mjög gaman að fara í leikhús. Í fyrsta sinn sem við Tobbi fórum í leikhús og við búin að vera saman í 8 ár...... Við fórum út að borða á kringlukránna fyrir sýninguna og þar var Láki litli að þjóna og sá hann um borðið okkar. Gott að fá svona einkaþjón hehe við tobbi ætlum pottþétt að fara þangað aftur!!!!

Marlín og Óli komu til okkar á laugardaginn síðasta og borðuðum við saman svínahnakkasneiðar og allskonar meðlæti með því. Marlín bjó til snilldarsósu mmm nammi namm.. Krakkarnir voru svo ánægðir að fá að hittast og leika saman, þau eru alveg ótrúlega góð saman öll fjögur. Við þurfum að vera duglegri við þetta Marlín!!! svona fyrir börnin allavega og líka fyrir okkur. Alltaf æði að fá ykkur í heimsókn og fara til ykkar !!!
Svo var líka afmæli hjá henni Eddu Ósk á sunnudeginum og fengum við snilldarmat hjá skvísunni mm fæ bara vatn í munninn við tilhugsunina. Þúsund þakkir fyrir mig Edda!!!!
Maður er því bara búin að vera éta í marga marga daga.

Ég fór með krakkana í fermingu hjá Magga litla bróður hennar Lilju sem var að passa fyrir okkur og Elínborg var svo ánægð að komast í heimsókn til Lilju sinnar. Hún hékk alveg í pilsfaldinum á henni svona þegar feimin fór af henni..

Fórum svo í mat til tengdó í gær og fengum Gæs og var það bara mjög gott. Svo var Elín búin að vara voða myndó og bjó til ís og skyrköku og namm var hún góð... Og finnst ykkur skrýtið að maður grennist ekkert :haha: Börnin nutu sín alveg í botn að vera úti að leika. Náðu í hjól og traktor og voru alveg fram eftir öllu úti að leika!!!

Maður er nú aðeins farin að sjá að það sé að koma vor. Gatan er aftur farin að fyllast af hlátrasköllum í krökkunum í götunni enda eru þau ekki fá!!! Krakkarnir allir farnir að vera úti að hjóla og á skautum. Ég og önnur í götunni ,sem vinnur með mér, vorum að telja  hvað þau eru mörg bara í grafhólunum sem eru að fara í skólann í haust en þau eru 5 og Daníel er eini strákurinn hehe!!!! Daníel er orðin voða spenntur fyrir því að fara í skólann

En svo er bara meira át á morgun... en það bíður heilt læri í ískápnum eftir því að vera etið!!! Mundi og Ida ætla að borða hjá okkur á morgun. En svo eru nokkur páskaegg sem bíða þess að vera etin...

Það er nóg að gera í nöglum, smellti á Dísu í dag, fer með Þórdísi skvísu í skólann á þriðjudagskvöldið. Íris ætlar að meta hvernig neglurnar mínar eru orðnar og hvort ég sé að verða tilbúin í prófið!!!! bara spennandi.....

EN já ætla að glápa á Brit award!! Sætu strákarnir í Take That voru að stíga á sviðið í þessum skrifuðum orðu.....
Kiss kiss og endilega skilið eftir fótspor!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 19:28:29 / ViggZ

Veikindi...

Úff ég er búin að vera með leiðindarpest síðan á föstudaginn í hinni vikunni og er orðin alveg frekar þreytt á þessu..... búin að missa röddina, búin að vera með hita og slappleika komin með ljótan hósta og bara orðin þreytt á þessu.... Ég er búin með 1 og hálfa klósettrúllu í snýtingar enda lek ég einsog versta gatasigti.... :klikk: En ég er nú að hressast sem betur fer en held ég verði að halda kyrru fyrir allavega fram til mánudags... og hefði klárlega átt að sleppa því að vinna á miðviku- og fimmtudaginn.... En þetta er bara ég get ekki sleppt því að mæta útaf smá slappleika....

Við héldum stærðarinnar afmælisveislu fyrir þann 6ára á sunnudaginn. Ég var sveitt á laugardeginum fyrir að baka og þrífa og gera og græja nema ég vaknaði þann morgun fokking raddlaus :evil: en röddin skilaði sér svona aðeins til baka á sunnudeginum en eftir því sem gestunum fækkaði fann ég bara hvað ég varð slappari... enda ekki búin að hafa tíma til þess að hleypa veikindum að....

Svo er ég komin með neglur Kristrún smellti á mig og ég smellti á hana. Ég var samt pínu óörugg að vinna með hennar dót... Tipsin hennar voru ekki einsog mín og svona aðeins munur á gelunum en held samt að þetta hafi gengið nokkuð vel...

Held það sé nú ekki mikið meira að segja nema bara
over and out!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 20:57:44 / ViggZ

ble

Jæja ég fór með henni Tótu minni í ölver um helgina og við vorum þar ásamt 30 og eitthvað konum hehe það var mjög gaman. Skröppuðum heilan helling en töluðum kannski minna enda mín alltaf jafn feimin :^) En afraksturinn er hér á skrappblogginu :lol:

Annars er bara smá drama í vinnunni... og allt bara í rugli en það hlýtur að ganga yfir :$ vonandi.....

Og já litli prinsinn minn er orðin 6 ára vá 8| ég bara túri þessu ekki hehe en jú jú svona flýgur tíminn!!!

hef voða lítið meira að segja nema að mundi ætlar að járna fyrir mig á morgun og svo fæ ég neglur hjá henni Kristrúnu sætu spætu  en það verður líklega í næstu viku 8) Við ætlum bara að vera með vinnuskipti hún sér um mínar neglur og ég um hennar!!!! bara cool.

annars bara knús og kram og munið að knús þá sem þið elskið því það eru þeir sem standa þéttast að baki ykkur

Over and out!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 13:06:10 / ViggZ

alltaf nóg að gera!!

Jæja maður er bara heima að kúra með litlu prinsessuna. Hún er búin að næla sér í ælupest  voða gaman en hún er nú ótrúlega hress núna og búin að fá sér smá í mallakútinn. Svo þetta ætlar nú ekki að vera mjög slæm pest í þetta skiptið :)

Við skelltum okkur á þorrablót um síðustu helgi og það var mjög skemmtilegt!! mikið hlegið enda voru skemmtiatriðin mjög vel heppnuð. Hún Elín tengdamamma var í skemmtinefnd í þetta skiptið og mamma hennar Glódísar og tókst þetta mjög vel hjá þeim!!! Það var nú tvísýnt hvort við myndum nú nokkuð komast heim en nýju ofurbíllinn fór þetta, ekki að spyrja að því. Sigrún fékk að fljóta með á selfoss Sigga hans Baldurs var voða fegin að fá að sleppa við þann aukarúnt í "góða" veðrinu... Lilja sæta var hérna hjá okkur og passaði börnin.

Það er bara búið að vera rólegt í naglaásetningu núna en ætli það fari ekki að verða meira að gera eftir því sem nálgast fermingar. En endilega bjallið á mig ef ykkur vantar smá dekur :haha:

Ég smellti mér svo með henni jóhönnu á Herbalife og gengur það bara nokkuð vel. Ég er búin að missa 13,5 cm á 3 vikum og farin 5 kg :haha: Það er alltaf ánægjulegt þegar maður er komin ofurnálægt 90kg :$

En allavega er eitthvað smá á dagskrá hjá mér á næstu vikum einsog Saumaklúbbur!!!!, segulómun... verður spennandi að sjá hvað þeir sjá að mér í þeim málum.... Leikhúsferð( og kallinn með...) Og bara fara að smella undir klárinn járnum og þá getur maður farið að ríða út svona ef veður leyfir.... Og ekki má gleyma Meistaradeildinni í hestaíþróttum annan hvern fimmtudag!! það verður fastur liður hjá okkur Kristrúnu og Bergþóru!! bara gaman. Ég fékk að sjá um að gera skreytingarnar á dómaraborðin :haha: en þær nutu sín nú ekki mikið þarna á dómaraborðunum en ef þið sjáið eitthvað brot af þessu í sjónvarpinu þá megið þið rýna í skreytingarnar á borðunum hjá dómurunum :haha:

En allavega over and out við prinsskessan ætlum að horfa á Astrópíu aftur. Skessan alveg heilluð af henni Ragnhildi :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 23:17:07 / ViggZ

snjór snjór snjór...

Var búin að skrifa langa runu en nei netið datt út :klikk:

Við erum búin að njóta þess að leika í snjónum búin að fara í nokkra göngutúra með sleða. ég rölti með börnin í leikskólann 2 daga í röð ekkert smá dugleg.

Búið að vera nóg að gera í naglaásetningu, ég er búin að smella inn myndum af nýjustu settunum mínum á www.grafholar.xblogg.is

Það er rosa snjóhengja sem hangir hérna ofan af þakinu mínu.... ég bíð eftir að sjá hana hrynja niður....

en endilega skilið eftir smá kvitt

voða margir sem kíkja við en fáir sem kvitta fyrir komuna


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 18:08:25 / ViggZ

uppfrifjun á árinu sem var að líða....

Hvað gerðist nú á árinu....

 Í janúar byrjuðum við á blessaði húsinu og lífið snést bara um það í byrjun árssins..... Það einkenndi okkur alveg fram í mars.... það var það eina sem við gátum talað um hehe ekki mjög skemmtilegt fólk......

Þórdís og Steini fluttu svo á selfoss og vorum við ánægð með að fá þau á fossinn það var í apríl held að það hafi verið það besta við apríl hehe..... Það bætist í barnahóp vinkvennanna og vonandi fer þeim enn fjölgandi....

Vorið kom og fór án þess að nokkuð merkilegt gerðist..... með hækkandi sól fór margt að gerast börnin fóru í hálskirtlatöku í byrjun júní og einnig var hún Þórdís sæta gæsuð í júní. Og hún mamma kom heim eftir langa dvöl á spítulum og endurhæfingarstöðvum. Og vorum við öll himilifandi yfir því að hún skildi vera komin heim!!!!

Stóri dagurinn hennar Þórdísar var svo í Júlí og var veislan þeirra skötuhjúa alveg hreint út sagt æðisleg persónuleg og notarleg. Ég fór að æfa fótbolta af fullri hörku í hveró í sumar og voru þessar æfingar hreynt út sagt æðislegar enda fengum við held ég bara 4 æfingar í sumar þar sem rigndi..... Við fórum í 2 útilegur..... enda kom sumarið og fór án þess að maður næði í skottið á því.. Við versluðum okkur eitt stykki tjaldvagn og er á planinu að nota hann meir sumarið 2008. Svo skall haustið á okkur með sínum rigningardögum enda sumarið búið að vera frekar gott.

Það gerðist nú ekkert svo merkilegt með haustinu nema það bara rigndi og rigndi. Börnin náttúrulega blómstruðu í allri rigningunni.... Við vorum búin að ákveða að drífa okkur út til DK að læra en svo bregðast krosstré sem önnur tré og erum við hætt við það sökum þess að skólinn sem ég batt vonir við er hættur með námið :cry: En í stað þess fer ég bara í Garðyrkuskólann í hveró það er líka ekkert verra. Hefði bara verið gaman að upplifa eitthvað nýtt...

Stelpan varð svo 26 á árinu við Þórdís héltum upp á 51 árs afmælið okkar hérna í hólunum og áttum við notarlega stund með vinum og mökum þeirra.

Vinnan var náttúrulega brjáluð á árinu enda ekki við öðru að búast og ég fór að vinna allan daginn með haustinu... Svo útaf því að ég hef svo rosalega lítið að gera.... þá ákvað ég að drífa mig í að læra að setja á Gelneglur og gekk bara glimrandi vel þessa 2 daga sem ég var í skólanum... og hefur gengið vel að setja á flestar þær sem ég hef sett á. Og allar bara mjög ánægðar með árangurinn :haha: Svo ef þú ert þreytt á þínum nöglum og langar að dekra smá við þig þá máttu bara endilega bjalla á mig!!!!

Jólin komu svo með sínu vinnubrjálæði og stressi.... Það var brjálaða  að gera hjá okkur desember og rétt svo að við hefðum haft tíma til að halda jólin... En það tókst allt á endanum og áttum við mjög góð jól.  Á milli jóla og nýjárs vildi liðið á borgarspítalanum endilega fá mömmu til sín og kyrrsettu hana í 10 daga hjá sér... En hún var svo send heim með hraði á gamlársdag þá voru þeir búnir að fá nóg af henni......... En við eyddum svo gamlárskveldi með Idu og Munda og fylgdumst með fólkinu í kringum okkur sprengja í burtu árið... tobbi var bara rólegur í flugeldabrjálæðinu.

 

Svo vil ég bara óska ykkur sem les þetta gleðilegs árs og takk fyrir allt það góða á liðnu ári!!!!

 og muna að kvitta :^)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 18:38:38 / ViggZ

Brjálaðar neglur og jól..

Jæja ætli það sé ekki komin tími á eitt blogg.... Ekki búið að gerast neitt í mánuð á þessari blessuðu síðu....

Reyndar er búið að vera brálað að gera hjá mér.... Nóg að gera í vinnunni ég er núna farin að vinna frá 9-18. og Svo fór ég á námskeið í gelnaglaásetningu... og það er búið að vera brálað að gera hjá mér í þeim bransanum líka.... Svo ef þig langar í fínar nelgur bjallaðu þá á mig og við finnum hentugan tíma!! Þær sem voru með námskeiðið voru mjög ánægðar með hvað mér gekk vel að setja á neglur!!!! og þær sem hafa fengið neglur hjá mér eru mjög ánægðar með neglurnar!! Svo tók stelpan þátt í tískusýningu..... úff veit ekki hvort það verður nokkuð endurtekið en þetta var samt gaman hehe!!!!

Við fórum á 2 jólahlaðborð bæði í hótel selfoss... vorum mjög stutt þegar við fórum með vélaverkstæðinu því ég átti eftir að setja á jóhönnu systir þegar ég fór á hlaðborðið.. og vildi ná að setja á eina heima áður en ég færi aftur á námskeiðið... En svo var rosafjör hjá okkur þegar við fórum með blómaval og húsó. Við sátum með bergþóru og hennar kalli og svo Atla og Álfheiði og svo skelltum við okkur heim í grafhólana til að drekka pínu meira því við vorum með svo góðan driver hana Álfheiði!!! og svo skelltum við Bergþóra okkur á ball.... og auðvitað lenti viggan í því að komast ekki inn var beðin um skilríki en hinn dyravörðurinn hleypti mér inn taldi mig vera orðna nógu gamla....... Halló hversu barnaleg er ég......... eða kannski bara svona ungleg :lol: Og auðvitað lenti ég í vandræðum á ballinu........ einhver smágella reyndi að lemja mig en hún fékk aðeins að finna fyrir því hvar davíð keypti Ölið..... :klikk:

Annars eru jólin búin að vera góð nema svefn barnanna er eitthvað sem hefur alveg týnst í öllu jólaæðinu.... við eyddum öllum deginum í gær með systkinum mínum skelltum okkur í góðan göngutúr og enduðum á því að krakkarnir voru að renna sér á hólnum við háengið og svo var farið heim og fengið sér osta og svo hangikjöt og með því. Og við spiluðum svo Bíóbrot mjög skemmtilegt spil!!!

í dag fórum við í sveitina og renndum okkur á sleða og skemmtum okkur í snjónum. Ekki oft sem maður fær svona gott veður til að snúllast í snjónum með krökkunum!!!!

Svo eru neglur í kvöld, matarboð á morgun, jólaball á laugardaginn, vinna á sunnudag og mánudag og svo sprengja árið út á mándudeginum og líka matarboð!!! brjálað að gera..... en bara gaman!!!!! og afslappelsi á þriðjudaginn og svo bara vinna á fimmtudag..... og þá ætti að komast aftur rútína á blessuð börnin........

Ef ég nenni ekki að skrifa hérna inn á gamlársdag þá vil ég óska ykkur

Gleðilegs Nýs Árs og takk fyrir allt gott á liðnu ári....


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 18:41:58 / ViggZ

Jólahugur..

Jæja er ekki best að koma með smá bloggerí blogg.. Allavega búið að vera brjálað að gera hjá okkur en nú er aðeins farið að  róast í smá tíma allavega.....

Ég fór í æðislega sumarbústaðaferð með skvísunum mínum. Þetta verður klárlega árleg ferð hjá okkur!!Það var margt skemmtilegt gert t.d. farið í pottinn um miðjar nætur og fólkinu í kring skemmt með smá svanasöng. Tókum í buzz, maður þarf víst að hemja sig aðeins... ég varð doldið kappsöm en hey ég ætlaði ekki að láta taka mig í þurrann..... Svo var singstar líka brúkað við misjafnar unditrektir og það voru einhverjir ónefndir sem einokuð mikana og ég man bara ekkert hver það var :$  Við föndruðum líka helling!!! sumir voru nú svo kappsamir í föndrinu að þær lögðu föndrið niður um 3 um nóttina.. hmm hverjar voru það :D allavega takk æðislega fyrir þessa frábæru ferð og Þórdís við endurtökum spjallið vonandi Ekki að ári svona svo við fáum smá hvíld..... nei það var bara æði!!!!! Takk þúsund sinnum og hlakka til að fara aftur í æðislega afslöppunar ferð!!!!

Annars er bara búið að vera vinna sofa og það allt, Höfðum kósýheita kvöld um þarsíðustu helgi tókum DVD og átum á okkur gat. Daníel bræddi mig alveg þegar ég kom úr vinnunni og spurði mig "elsku mamma ertu nokkuð að fara neitt í kvöld" ég"nei" daníel "meigum við þá hafa kósýkvöld og kúra upp í sófa saman" og auðvitað var keypt eitthvað ruslfóður og náð í DVD og kúrt yfir Barnyard og svo horfðum við tobbi á Harry potter nýjustu myndina. 'Otrúlega kósý. Við fengum líka munda og Idu í mat, ég var með smá tilraunamatseld og hún tókst bara ágætlega fékk allavega enginn í magann...

Við Þórdís gerðum jólakort á föstudaginn og náði ég að gera nokkur svona "flókin" kort. Hún kann svo margt sniðugt föndur þessi elska!!!! Takk fyrir kennsluna sæta!!! Kallarnir okkar fóru svo í pissukeppni....... hvor á flottari myndavél og meirir græjur.....:lol:

Það er búið að vera brálað í vinnunni og er aðeins að lægja núna og síðan verður aftur vitlaust að gera.... Við mamma fórum á aðventukransa kvöld í vinnunni og græjuðum kransana okkar!! minn er sko HUGE 8) ég er sko rosa montinn af honum. Ég tók myndir af honum áðan og ætla að smella þeim á netið á eftir kem með mynd í kvöld!!!!

Ég er svo með einhverja leiðindarpest.... og ákvað að taka því rólega í dag og hanga bara heima við... búin að horfa á milljón þætti gott að ná aðeins í skottið á því sem maður á á tölvunni......

Svo er rosa konfektgerðar kvöld hjá okkur skvísunum þarnæsta föstudag. Hef bara aldrei gert konfekt það verður rosa gaman!!!!

Við smáfjölskyldan fórum í smá kaupleiðangur um síðustu helgi!! keyptum alveg helling af allskyns óþarfa... náði aðeins að bæta í fataskápinn hans Tobba "vei klappa fyrir mér"  Búin að versla jólafötin á krakkana á bara eftir að finna sætar sokkabuxur á litlu pæjuna og þá er hennar dress tilbúið!! Náðum að kaupa nokkrar jólagjafir eigum bara eftir að kaupa handa munda og Idu og jólagjöfina hans Daníels, erum búin að ákveða báðar gjafirnar. Ég á bara eftir að versla eitthvað sætt handa kallinum...

Ég er svo að fara á naglanámskeið......  hefur lengið langað að læra þetta en aldrei látið verða af því og núna ákvað ég bara að drífa mig.....

Svo það er nóg að gera fyrir jólinn. Ég er að reyna að fá Kallinn til að finna allt jóladótið langar svo að fá seríur upp í gluggana og fara að gera allt jólajólalegt!!!! held að jólaálfurinn sé alveg að koma. Þó er ég búin að vera í kringum jóladót síðan í október....... úff

Njótið aðventunnar í faðmi þeirra sem ykkur þykir vænt um!!!!! og munið gangið hægt um gleðinnar dyr!!!!

viggan kveður með brjálaða jóladagskrá!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 18:30:00 / ViggZ

Jól...

Er ekki komin jólahugur í fólk. Var að gera smá jólahreingerningu. Hreinsa út tengla sem eru ekki lengur virkir og svona og bæta við nýju og skemmtilegu fólki!!!

over and out


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1143 dögum
koma jólin!!!!!
Dagsetning
10. febrúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 25 nóvember